Saltfiskurinn frá Ekta fiski – þessi gamli góði
Við leggjum mikinn metnað í saltfiskinn okkar og vinnum hann eins og við lærðum af Trausta afa sem stofnaði fyrirtækið árið 1940. Það þýðir að við sprautusöltum ekki fiskinn heldur söltum hann í stæður og leyfum honum að liggja og verkast í nokkra mánuði. Við notum einungis hágæða matarsalt og endurröðum og söltum yfir tímabilið.
Að því loknu er hann útvatnaður á sérstakan hátt, með íslensku vatni og pakkaður í handhægar umbúðir.
Saltfiskurinn okkar er í megin dráttum tvennskonar:
1 Hefðbundni saltfiskurinn, þessi gamli góði, er útvatnaður þannig að hann er tilbúinn í pottinn og er frábær með kartöflum og smjöri eða hömsum.
2. Hins vegar er það sérútvatnaði saltfiskurinn sem er, eins og nafnið gefur til kynna útvatnaður lengur og er orðinn bragðdaufari. Hann er frábær í alla rétti sem eru kryddaðir með öðrum hráefnum og hinn hefðbundni saltfiskur yrði of bragðsterkur.
Það er mjög mikilvægt að velja rétta hráefnið miðað við hvað maður ætlar að elda. Við mælum eindregið með sérútvatnaða saltfisknum á saltfiskpizzuna.
Við seljum einnig óútvatnaðan saltaðan fisk sem tilvalið er að senda vinum og ættingjum erlendis. Leiðbeiningar um útvötnun má finna hér á vefnum okkar.
Pantaðu fiskinn hér!
Við sendum frosið með Flytjanda og þú getur nálgast í afgreiðslunni þeirra.
-
Lomos Extra – Stórar útvatnaðar saltfisksteikur 5 kg
21.375kr. með vsk. -
Lomos selectos – Sérvaldar minni útvatnaðar saltfisksteikur – 5 kg
20.495kr. með vsk. -
Sérútvatnaður saltfiskur 5kg, tilbúinn í rétti
20.415kr. með vsk. -
Útvatnaður saltfiskur til suðu 5kg, tilbúinn í pottinn.
20.415kr. með vsk. -
Óútvatnaður saltfiskur 5 kg
17.100kr. með vsk. -
Léttsaltaðar gellur 5 kg
16.700kr. með vsk. -
Útvatnað saltfiskkurl 5kg
10.630kr. með vsk. -
Saltfiskfiðrildi 5 kg
10.090kr. með vsk. -
Útvötnuð söltuð þunnildi 5 kg
10.090kr. með vsk.