Fátt finnst okkur betra en heitur saltfiskplokkari með þrumara á kantinum. Hér er
einföld og góð uppskrift fyrir tvo til þrjá sem við þreytumst seint á að mæla með.
- 500gr útvatnaður saltfiskur
- 1 laukur
- 1 púrrulaukur
- 1 askja rjómaostur
- 1 lítill gráðostur
- 1 rjómaostur með kryddblöndu
- Ostur
- Gulrætur eða stenselja
- 300gr kartöflur
- Mjólk
- Rúgbrauð og smjör
Hitið ofninn í 200°. Sjóðið saltfiskinn og kartöflurnar og skerið í bita. Saxið
laukinn og púrrulaukinn smátt og látið sjóða í mjólkinni (látið fljóta vel yfir).
Bætið gráðostinum og rjómaostinum út í mjólkina og sjóðið í jafning. Setjið
saltfiskinn út í ásamt kartöflunum, hrærið saman gætilega og hellið í eldfast fat.
Rífið svo ostinn yfir.
Bakað í ofninum í um 10-15 mínútur eða þar til osturinn er orðin brúnaður.
Takið fatið út og stráið rifnum gulrótum yfir eða skreytið með steinselju.
Borið fram með rúgbrauði og smjöri.
Verði ykkur að góðu!