Heim / Ekta fiskur / Uppskriftir / Spari skötuselur í karrý-hvítlaukssósu

Spari skötuselur í karrý-hvítlaukssósu


500-800gr Skötuselur
1 rauð paprika
1 gul paprika
púrrulaukur
2 dl rjómi

1tsk paprikuduft
1tsk hvítlauksduft
2tsk karrý
fiskiteningur
koníak (má sleppa)
salt og pipar

Skötuselurinn steiktur á pönnu, kryddaður með salti & pipar (aroma).

Paprika rauð og gul, laukur og púrrulaukur saxað og svissað á pönnu.

Rjóma bætt útí, kryddað með paprikudufti, hvítlauksdufti, karrý og fiskikrafti.

Sletta af koníaki. Látið malla smástund.

Borið fram með hrísgrjónum og ristuðu brauði.