Heim / Ekta fiskur / Uppskriftir / Saltfiskur portkonunnar
Saltfiskur portkonunnar
800gr útvatnaður saltfiskur
Steikið saltfiskinn á pönnu með ólívuolíu og smjöri
Putanesca-sósan
150gr svartar ólífur
4 stórir tómatar
1/2 búnt basillauf
1 hvítlauksgeiri
10gr ansjósur
Allt er saxað í fína litla teninga og soðið saman í potti þar til blandan er orðin vel þykk
Hvítlaukskartöflumús
300gr skrældar og gróft saxaðar kartöflur
100gr rjómi
50gr íslenskt smjör
1 hvítlauksgeiri, fínt saxaður
Kartöflurnar eru soðnar við vægan hita með smá salti þar til þær eru allt að því fullsoðnar. Þá eru þær sigtaðar og látnar standa í 5 mínútur, á meðan er rjóminn og smjörið soðið saman ásamt fínt söxuðum hvítlauk. Þá er kartöflunum bætt í og öllu blandað saman með sleif. Blandið hægt og varlega svo músin verði ekki seig.
Birtist í 24 Stundum, þann 30. ágúst 2008.
