Heim / Ekta fiskur / Uppskriftir / Saltfiskklattar frá Puerto Rico
Saltfiskklattar frá Puerto Rico
300 g sérútvatnaður saltfiskur
2 bollar hveiti
¼ rauð paprika
¼ græn paprika
¼ laukur
2 geirar hvítlaukur
1 tsk steinselja
¼ tsk. svartur nýmalaður pipar
½ tsk. nýmalað salt
1-2 bollar fisksoð
3 bollar olía
Sjóðið saltfiskinn í 5 mín.
Setjið paprikuna, laukinn, hvítlaukinn, steinseljuna, piparinn og saltið í matvinnsluvél og maukið saman.
Merjið saltfiskinn og hrærið honum saman við og jafnið með hveitinu og soðinu.
Búið til klatta og steikið þá upp úr olíu.
Þessir klattar eru fínir sem smáréttur á köldu veisluborði og þá er gott að vera með kaldar sósur með þeim, t.d. piparrótarsósu, sítrónusósu eða sweet relishsósu, en sú sósa hefur reynst best hjá okkur og verið vinsælust þó einföld sé.
Við höfum líka haft klattana bara í matinn, heita, nýsteikta og borið fram með þeim soðnar kartöflur, salat og hvað annað sem okkur dettur í hug, en yfirleitt fylgir sweet relishsósan með.
Köld sósa:
1 bolli léttmæones
1 msk sweet relish
