Ektafiskur
        <language>is</language>
Viðtal á Rás 1
Sagan okkar
            <description><![CDATA[Í dag opnaði vefurinn bjartsyni.is en sá vefur hefur þann tilgang að safna saman sögum, hugmyndum og ábendingum um góðan árangur í atvinnulífinu, spennandi verkefni og vænlegar leiðir á komandi tímum. Okkur hjá Ekta fiski fannst sagan okkar eiga erindi á þennan vettvang, en Ekta réttir og Ekta fiskur er afrakstur stórra drauma sem hafa nú orðið að veruleika. Vonandi getum við orðið innspýting í vonir einhverra.
Söguna okkar má finna hérna.]]></description>
Ofnbakaður saltfiskur
            <description>800gr þykkir saltfiskbitar (lomos extra)
4 stórar kartöflur
2 laukar
1/2 kúrbítur
1 græn paprika
1 rauð paprika
4-6 hvítlauksrif
nokkrar ólífur
rósmarín
ólívuolía
basilika
steinselja
Veltið saltfiskinum uppúr hveiti og steikið í tvær mínútur á hvorri hlið og leggið til hliðar. Skerið kartöflur í báta og steikið á pönnunni, kryddið með rósmaríni og smá salti, setjið í eldfast mót.
Steikið því næst lauk, paprikur og kúrbít og setjið í eldfasta mótið. Raðið síðan fiskinum þar ofan á og skreytið með nokkrum ólívum. Bakið í ofni í um 40 mínútur við 180°C.
Meðlæti:
Maukið saman 2dl af ólívuolíu, hvítlauk, hálfu búnti af basiliku og hálfu af steinselju og berið fram með fiskinum.
Birtist áður í fréttablaðinu þann 19. september 2008</description>
Saltfiskur portkonunnar
800gr útvatnaður saltfiskur
Steikið saltfiskinn á pönnu með ólívuolíu og smjöri
Putanesca-sósan
150gr svartar ólífur
4 stórir tómatar
1/2 búnt basillauf
1 hvítlauksgeiri
10gr ansjósur
Allt er saxað í fína litla teninga og soðið saman í potti þar til blandan er orðin vel þykk
Hvítlaukskartöflumús
300gr skrældar og gróft saxaðar kartöflur
100gr rjómi
50gr íslenskt smjör
1 hvítlauksgeiri, fínt saxaður
Kartöflurnar eru soðnar við vægan hita með smá salti þar til þær eru allt að því fullsoðnar. Þá eru þær sigtaðar og látnar standa í 5 mínútur, á meðan er rjóminn og smjörið soðið saman ásamt fínt söxuðum hvítlauk. Þá er kartöflunum bætt í og öllu blandað saman með sleif. Blandið hægt og varlega svo músin verði ekki seig.
Birtist í 24 Stundum, þann 30. ágúst 2008.
Fiskidagurinn mikli á Dalvík
            <description><![CDATA[Fiskidagurinn mikli á Dalvík var haldinn 8. og 9. ágúst síðastliðinn í áttunda sinn og heppnaðist alveg stórkostlega vel. Ekta fiskur var á staðnum og bauð þjóðinni í mat ásamt öðrum norðlenskum matvælafyrirtækjum og um 30.000 manns þáðu boðið. Við buðum uppá saltfiskbollur og plokkfisk ásamt saltfisknum á risa saltfiskspizzunni frá Promens, að hætti Greifans, sem vakti mikla lukku og eftirtekt um allt land.
Við viljum nota tækifærið og þakka öllum þeim sem komu við í tjaldinu okkar og nutu þessa góða dags með okkur. 
Vertíðarstemning hjá Ekta fiski
            <description>Við leggjum mikla áherslu að verka stóran þorsk (15-20kg) til að leggja í salt, og handflökum allan þann þorsk. Fyrir skömmu barst okkur einn stærsti þorskur sem við höfum nokkru sinni unnið, eða um 30kg stykki.
Það er reyndar mjög sjaldgæft að svo stórir þorskar veiðist við landið.</description>
Gullkistan - saltfiskur sem gjafavara
Við erum alltaf að reyna að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt með vörurnar okkar. Það nýjasta hjá Ektafiski nefnist „Gullkistan”, en það er gjafavara sem er ætluð fyrir ferðamenn og Íslendinga sem vilja senda vinum og viðskiptamönnum sérstaka og þjóðlega vöru frá Íslandi.
Um er að ræða timburkassa sem innihalda gamla góða þjóðlega þurrkaða saltfiskinn okkar sem skipar svo stóran sess í atvinnusögu okkar Íslendinga. Í kassanum eru nokkrir bitar af þurrkuðum saltfiski ásamt uppskriftum og leiðbeiningum á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, spænsku og þýsku, um það hvernig á að útvatna og elda fiskinn.
Við fengum hjónin Jóhann Antonsson og Petru Gunnarsdóttur hérna á Hauganesi til að smíða kassana, sem eru smíðaðir úr afgangs brettatimbri, þannig endurvinnum við timbrið í leiðinni.
Gullkistan frá Ekta fiski fæst meðal annars í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Auglýsingastofan Stíll á Akureyri sá um útlit kassanna.]]></description>
Eftirlæti vélstjórans
700 - 800 gr sérútvatnaður saltfiskur
5 stórir sveppir, 
1 - 2 laukar, 
2 - 3 gular paprikur,
ca 5 cm biti af púrrulauk, 
3 beikon sneiðar,
1 tsk Sykur
3 fullar msk léttostur með blönduðum sjávarafurðum, 
ca 1 - 2 bollar af mjólk, 
sletta af rjóma, 
kjúklingakrydd, 
hvítlaukspipar
Saltfiskurinn settur í vatn, suðan látin koma upp, og vatninu síðan hellt af.
Skerið grænmetið og beikonið í litla bita og steikið á pönnu þar til það er orðið mjúkt.
Stráið smá sykri yfir í steikingunni (má sleppa en það vegur upp á móti saltbragðinu).
Mjólkinni er bætt útí, suðan látin koma upp og síðan er rjómanum og ostinum bætt út í , og kryddað eftir smekk (nota það mikið af kjúklingakryddi að það komi smá gulur blær á réttinn. 
Þegar allt þetta hefur samlagast er saltfisknum bætt út í og rétturinn látinn malla við vægan hita í ca  10  mín.
Meðlæti: hrísgrjón og gott salat ásamt grilluðu brauði
Handa 4
Saltfiskur úr Stykkishólmi
            <description>1 kg. útvatnaður saltfiskur
2 dósir niðursoðnir tómatar
1 dós tómatpuré
3 feit og pattaraleg hvílauksrif
1 zucchini
1 blaðlaukur
græn og gul paprika
1 matsk. timian
1/2 búnt fersk steinselja
nýmalaður góður pipar
örlítið salt
hveiti
smjör og ólífuolía til steikingar
Skerið fiskinn í huggulega bita og sjóðið í nokkrar mínútur (7) og látið kólna örlítið. Takið svo með fiskispaða og látið kólna á diski.
Saxið það sem á að fara í sósuna og steikið, papriku, lauk og zucchini uns sveitt og mjúkt. Bætið þá hvítlauknum út í auk tómata og tómatpuré. Ef til er hvítvín þá má setja slettu út til hátíðarbrigða! Kryddið og látið malla, hrærið í reglulega.
Takið nú roð og bein af fisknum, kryddið hveiti með pipar og hitið ólífuolíu og smjör á pönnu. Veltið fiskbitunum upp úr hveitinu og steikið í smérinu uns fallega gyllt. Setjið þá bitana í eldfast mót og sósunni út á. Bakið þetta nú við 200 °C í 10 mínútur. Berið fram með salati og góðu brauði</description>
Saltfiskur á miðjarðarhafsvísu
            <description>800 gr sérútvatnaður saltfiskur 
hveiti, eftir þörfum
hvítur pipar
1/2 hvítlaukur
1/2 dl olía
1 dós niðurskorinn tómatur
1 krukka svartar ólífur
1 rauðlaukur
1/2 krukka kapers
1/2 krukka feta ostur í olíu
Þerrið fiskinn og veltið upp úr hveiti og pipar
Brytjið hvítlaukinn mjög smátt og mýkið örlítið í olíunni, veltið saltfisknum uppúr í smástund.
Setjið fiskinn í eldfast mót.
Dreifið tómatnum vel yfir saltfiskinn, sneiðið ólífur og rauðlauk og dreifið yfir auk kapers og að lokum feta ost. Ekki spara olíuna.
Bakið í ofni við 180°C í ca 10-12 mínútur</description>
                <category domain="http://www.sixapart.com/ns/types#tag">ólífur</category>
                <category domain="http://www.sixapart.com/ns/types#tag">saltfiskur</category>
Viðurkenning fyrir frumkvöðlastarf
Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri á Akureyri afhendir viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf.
Guðlaug og Elvar með viðurkenningu Ektafisks fyrir frumkvöðlastarf.
Ekta fiskur fékk viðurkenningu sem frumkvöðull ársins á sýningunni Matur-inn, sem haldin var í Verkmenntaskólanum á Akureyri þann 13. og 14. október sl.
Fyrir sýningunni, sem var tileinkuð norðlenskum mat og matarmenningu, stóð félagið Matur úr héraði – Local Food og tóku um 60 norðlenskir sýnendur þátt í henni. Aldrei áður hafa jafn margir norðlenskir aðilar sem koma að mat og matarmenningu komið saman í einum viðburði og eru allir hæstánægðir með hvernig til tókst, en talið er að yfir 10 þúsund manns hafi lagt leið sína á sýninguna. Tvö ár eru síðan sýningin var haldin fyrst, en stefnt er á að halda hana annað hvert ár, og velja frumkvöðul ársins í hvert sinn.
Við hjá Ekta fiski lítum á þessa viðurkenningu fyrir frumkvöðlastarf sem mikla hvatningu fyrir okkar störf og mikinn heiður, og þökkum fyrir heilshugar. Við viljum jafnframt óska sýningarhöldurum innilega til hamingju með frábæra sýningu.]]></description>
Eftirlæti skipstjórans.
            <description>handa 4-5
450-500 gr sérútvatnaður saltfiskur 
ca 1/2 bolli tómatsósa
1/2 krukka súrsæt sósa
1 msk  sykur
10 grænar olífur
Hvítlaukspipar
1 bolli  vatn
½  bolli hveiti
Olífuolía
1 græn og 1 rauð paprika
Hvítkálsbiti, á stærð við appelsínu.
1 laukur
2 gulrætur
1 poki frosið grænmeti t.d sælkera blanda
Skraut:  Tómatbátar og agúrka
Hitið vel olíu á pönnu.  Þerrið saltfiskstykkin og veltið þeim upp úr hveiti. Steikið þau á báðum hliðum í vel heitri olíu þar til þau verða ljósbrún. Kryddið vel með hvítlaukspipar.  Hristið pönnuna annað slagið.
Þegar fiskurinn er orðinn gulllitaður takið hann þá af pönnunni og geymið á diski.
Setjið nýja olíu á pönnuna og hitið. Sneiðið gulræturnar í þunnar sneiðar, og brytjið laukinn, paprikuna og kálið frekar smátt og steikið þetta allt á pönnunni þar til allt er orðið lint.
Þegar grænmetið er farið að linast á pönnunni, stráið þá sykrinum yfir og skerið olífurnar í tvennt og setjið þær útí líka. Bætið síðan tómatsósunni og súrsætu sósunni við og hrærið allt saman.  
Þynnið sósuna með vatni ef ykkur finnst hún of þykk.
Raðið steiktu fiskstykkjunum ofaná sósuna, setjið lokið á pönnuna og látið malla við vægan hita í 10 mín. 
Sjóðið frosna grænmetið skv. leiðbeiningum, látið vatnið svo renna af því
Setjið hæfilegt magn af sósunni á disk og raðið fiskstykkjunum ofaná. Setjið nokkra bita af soðnu grænmeti og skreytið með tómötum og agúrkum.</description>
Saltfiskur með rjómasoðnu spínati
            <description>1.4 kg. saltfiskur – hnakki frá Ektafiski
1 dl. ólífuolía
600 g. ferskt spínat
4 skalottulaukar
1 græn paprika
10 g. mynta
1 dl. hvítvín
2 dl. fisksoð
2 dl. rjómi
Veltið fiskinum upp úr hveiti og steikið hann í vel heitri olíunni.  Forsjóðið spínatið og skerið fínt.  Paprikan og skalottulaukurinn er saxað fínt og léttsteikt í olíunni.  Spínatinu er bætt út í og hitað í stuttan tíma.  Hellið hvítvíninu og rjómanum í pönnuna og sjóðið í stutta stund, setjið í matvinnsluvél og maukið.  
Jafnið(maizena mjöl) ef með þarf og setjið yfir fiskinn.
handa 6</description>
Steiktur saltfiskur að Katelónskum hætti
            <description>handa 6
1 – 1.2 kg. saltfiskur – hnakkastykki frá Ektafiski
1 dl. ólífuolía
1 stk. saxaður laukur
5 stk. hvítlauksgeirar, skornir í þunnar sneiðar
1 stk. rauð paprika, skorin í þunnar sneiðar
4 sneiðar af beikoni, skornar í ræmur
500 g. tómatar úr dós
5 g. rósmarin
1 dl. spænskt rauðvín
1 dl. fisksoð
100 möndlur (afhýddar)
svartur pipar úr kvörn
salt ef með þarf
Skerið saltfiskinn í hæfilega stóra bita og veltið upp úr hveiti, steikið á vel heitri pönnu í 4-5 mín. eftir þykkt.
Kraumið laukinn, hvítlaukinn, paprikuna og beikonið í 10 mín. eða þangað til það er vel meyrt.
Bætið nú út í rósmarin og fláðum tómötum, kremjið tómatana vel í pottinum og látið sjóða vel saman.
Bætið í rauðvíni og fisksoði.  Ristið möndlurnar á þurri pönnu eða í grilli, malið þær þvínæst í matvinnsluvél.  Látið út í sósuna til þess að þykkja hana.
Berið fram með krydduðum hrísgrjónum.</description>
Exqueixada de Bacalao (Hrár saltfiskur með tómötum, lauk og ólífum á salati)
            <description>handa 6
1 kg. saltfiskur – hnakkastykki frá Ektafiski
10 stk. tómatar
2 stk. laukar
100 g. ólífur
½ græn paprika
15 g. steinselja
1 dl. sherrýedik
½ dl. góð ólífuolía
svartur pipar úr kvörn
1 st. fíntskorið jöklasalat
Saltfiskurinn er rifinn fínt eða skorinn frosinn í áleggshníf.  Jöklasalatið er lagt á fat og saltfiskurinn ofan á.  Piparnum og lauknum er stráð yfir ásamt fínt saxaðri paprikunni.  Ólífurnar eru skornar í tvennt og þeim einnig stráð yfir.  Edikinu og olíunni er blandað saman og hellt yfir.  Tómatarnir eru maukaðir og þeim jafnað yfir fatið.
Að endingu er saxaðri steinselju stráð yfir.
Einnig gott á grilluðu snittubrauði</description>