Heim / Lesefni / Gullkistan - saltfiskur sem gjafavara
Gullkistan - saltfiskur sem gjafavara

Við erum alltaf að reyna að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt með vörurnar okkar. Það nýjasta hjá Ektafiski nefnist „Gullkistan”, en það er gjafavara sem er ætluð fyrir ferðamenn og Íslendinga sem vilja senda vinum og viðskiptamönnum sérstaka og þjóðlega vöru frá Íslandi.
Um er að ræða timburkassa sem innihalda gamla góða þjóðlega þurrkaða saltfiskinn okkar sem skipar svo stóran sess í atvinnusögu okkar Íslendinga. Í kassanum eru nokkrir bitar af þurrkuðum saltfiski ásamt uppskriftum og leiðbeiningum á fjórum tungumálum; íslensku, ensku, spænsku og þýsku, um það hvernig á að útvatna og elda fiskinn.
Við fengum hjónin Jóhann Antonsson og Petru Gunnarsdóttur hérna á Hauganesi til að smíða kassana, sem eru smíðaðir úr afgangs brettatimbri, þannig endurvinnum við timbrið í leiðinni.
Gullkistan frá Ekta fiski fæst meðal annars í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Auglýsingastofan Stíll á Akureyri sá um útlit kassanna.
